09.07.12 - 16:35
Magnús Már Einarsson
Roberto Mancini gerir nýjan samning við Man City (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Roberto Mancini, knattspyrnustjóri Manchester City, hefur skrifað undir nýjan fimm ára samning við félagið.
Mancini hefur verið orðaður við landsliðsþjálfarastarf Rússa að undanförnu en orðrómur var um að hann myndi fá gífurlega háar fjárhæðir fyrir að taka við því starfi.

Nú er hins vegar ljóst að Mancini mun ekki fara frá Manchester City á næstunni.
Mancini tók við Manchester City af Mark Hughes í lok árs 2009 og undir hans stjórn varð City enskur meistari á síðasta tímabili.
,,Ég er ánægðir með að geta hjálpa Manchester City í fimm ár til viðbótar. Ég hlakka mikið til að takast á við þær áskoranir sem eru framundan,\" sagði Mancini eftir að hafa skrifað undir.

Heimild: Heimasíða Manchester City