Fotbolti.net
09.09.26 - 16:12
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Byrjunarliðsfréttir

Byrjunarlið Njarðvíkur og Þróttar: Eiður Aron í starfsliðinu

Eiður Aron ekki með.

Eiður Aron ekki með.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Klukkan 17:00 tekur Njarðvík á móti Þrótti í undanúrslitum Lengjudeildarumspilsins. Um fyrri leik liðanna er að ræða og er spilað á JBÓ vellinum í dag. Liðin enduðu í 2. og 5. sæti deildarinnar og spila tvo leiki um að mæta annað hvort HK eða Fylki í úrslitaleik um sæti í Bestu deildinni.

Davíð Smári Lamude, þjálfari Njarðvíkur, gerir þrjár breytingar á sínu liði frá sigrinum á Aftureldingu á laugardag. Aron Einarson er meiddur og þeir Hrafn Guðmundsson og Björn Aron Björnsson taka sér sæti á bekknum. Leandro Fernandes, Arnar Helgi Magnússon og Valdimar Jóhannsson koma inn í liðið. Eiður Aron Sigurbjörnsson, fyrirliði Njarðvíkur, er ekki með í dago er Sigurjón Már Markússon með fyrirliðabandið. Eiður er skráður leikgreinandi.
Bestu varnarliðin mætast í Njarðvík - Verður fyrirliðinn með?
TENGT EFNI

Bestu varnarliðin mætast í Njarðvík - Verður fyrirliðinn með?

Lestu um leikinn: Njarðvík 0 - 0 Þróttur R.
Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, gerir sömuleiðis þrjár breytingar frá sigrinum á Vestra á laugardag. Aron Snær Ingason, Hlynur Þórhallsson og Eiríkur Þorsteinsson Blöndal koma inn í liðið. Þeir Björn Darri Oddgeirsson, Viktor Steinarsson og Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson taka sér sæti á bekknum.

Seinni leikur liðanna fer svo fram í Laugardal á sunnudag. Leikirnir verða í beinni útsendingu á Livey og í beinni textalýsingu hér á Fótbolti.net.

Hér má sjá upphitunarþátt fyrir leikinn:

Byrjunarlið Njarðvík

  • 1. Guy Smit (m)
  • 3. Sigurjón Már Markússon (f)
  • 5. Arnar Helgi Magnússon
  • 6. Arnleifur Hjörleifsson
  • 7. Bragi Karl Bjarkason
  • 8. Leandro Fernandes
  • 9. Oumar Diouck
  • 10. Valdimar Jóhannsson
  • 13. Felix Lima Santos
  • 21. Alexander Helgi Sigurðarson
  • 66. Viktor Nói Vidarsson

Byrjunarlið Þróttur R.

  • 1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
  • 2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
  • 3. Stefán Þórður Stefánsson
  • 4. Njörður Þórhallsson
  • 8. Baldur Hannes Stefánsson (f)
  • 10. Sigurður Egill Lárusson
  • 21. Brynjar Gautur Harðarson
  • 22. Kári Kristjánsson
  • 25. Hlynur Þórhallsson
  • 27. Örn Bragi Hinriksson
  • 32. Aron Snær Ingason
Aron Snær kemur aftur inn í lið Þróttar.

Aron Snær kemur aftur inn í lið Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valdimar kemur inn í lið Njarðvíkur.

Valdimar kemur inn í lið Njarðvíkur.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Hlynur mætir aftur í lið Þróttar.

Hlynur mætir aftur í lið Þróttar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.