Fotbolti.net
09.10.26 - 12:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

„Hef verið aðdáandi Arsenal alla ævi"

Skrifar frá Rovinj í Króatíu

Emelía fagnar hér marki með HB Köge.

Emelía fagnar hér marki með HB Köge.

Canon

Mynd: HB Köge

Eimskip
Emelía Óskarsdóttir hefur gert vel að koma til baka eftir alvarleg meiðsli og er hluti af landsliðshópnum sem mætir Króatíu í umspili fyrir HM síðar í dag.

Hún hefur verið í góðu hlutverki hjá danska toppliðinu HB Köge á þessu tímabili og fékk að spila gegn Arsenal í Meistaradeildinni á dögunum.
Frá árs fjarveru í íslenska landsliðið - „Tíminn líður ekkert eðlilega hægt“
TENGT EFNI

Frá árs fjarveru í íslenska landsliðið - „Tíminn líður ekkert eðlilega hægt“

„Það var ótrúlegt," segir Emelía við Fótbolta.net um þá reynslu.

„Ég hef verið aðdáandi Arsenal alla ævi. Ég heyrði að þær spiluðu deildarleikina sína á Emirates og ég viðurkenni að það var smá svekkjandi... þær spila greinilega ekki Meistaradeildarleikina gegn litlu liðunum þar."

„Það er bara eins og það er. Það var geggjað gras líka í Meadow Park. Að koma inn á gegn þeim var galið út af fyrir sig. Við spiluðum góðan leik og áttum allt í þetta."

Arsenal vann leikinn 1-0 með marki úr vítaspyrnu í uppbótartímanum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.