24.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Emre Mor tekur sér hlé frá fótbolta

Emre Mor í leik gegn Íslandi árið 2016

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Emre Mor í leik gegn Íslandi árið 2016

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn 29 ára gamli Emre Mor hefur ákveðið að taka sér hlé frá fótbolta. Hann var liðsfélagi Willums Þórs Willumssonar hjá NEC Nijmegen í Hollandi en félagið tilkynnti í gær að hann ætli að stíga til hliðar og samningi hans var rift.
Hann segir í yfirlýsingu sem félagið sendi frá sér að hann þurfi að taka sér pásu þar sem hann þurfi að huga að líkamlegri heilsu.
Mor er fæddur í Danmörku en hann gekk til liðs við Dortmund frá Nordsjælland árið 2016, þá 19 ára gamall. Hann var þá sagður vera „tyrkenski Messi".
Hann var aðeins eitt ár í Þýskalandi og skoraði eitt mark í 19 leikjum. Hann fór til Celta Vigo árið 2017 og var á láni hjá Galatasaray, Olympiakos og Fatih Karagümrük í Tyrklandi frá 2019-2022.
Þaðan var hann keyptur til Fenerbahce og spilaði 49 leiki áður en hann var lánaður til Eyjupspor. Hann gekk síðan til liðs við NEC í sumar og spilaði sjö leiki og skoraði eitt mark.