Fotbolti.net
24.11.26 - 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Liðsfélagi Kristians ekki að flýta sér á stóra sviðið - „Á margt eftir ólært"

Liðsfélagi Kristians ekki að flýta sér á stóra sviðið - „Á margt eftir ólært"
Canon

Mynd: EPA

Hinn 18 ára gamli Ruud Nijstad, miðvörður Twente, er ekki að kippa sér mikið upp yfir orðrómum um að Barcelona hafi áhuga á sér.

Nijstad var á forsíðum spænska dagblaðsins Diario Sport en hann er mjög stoltur af því.
„Ég er með dagblaðið heima, það er skemmtilegur minjagripur. Það er frábært að vera nefndur þarna en ég einbeiti mér af því að standa mig hjá Twente," sagði Nijstad.

„Ég tók meðvitaða ákvörðun að vera áfram hjá Twente í ár til viðbótar. Ég tel að ég eigi ennþá margt eftir ólært og get gert það vel hér. Ég nýt mín mikið, við erum með frábært lið, við erum að gera vel og ég stend mig vel líka."

Nijstad er fastamaður í liði Twente sem er í 3. sæti hollensku deildarinnar, tveimur stigum á eftir toppliði PSV. Kristian Nökkvi Hlynsson er leikmaður Twente.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.