Fotbolti.net
09.10.26 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson
Ítalski boltinn

Vill útrýma dýfum úr boltanum - „Þá spila ég honum ekki“

Silvio Baldini

Silvio Baldini

Canon

Mynd: EPA

Silvio Baldini, þjálfari U21 árs landsliðs Ítalíu, hefur lýst yfir stríði gegn dýfum og vill útrýma þeim úr fótboltanum.
Baldini er þekkt nafn í ítalska boltanum og hefur meðal annars stýrt Parma, Palermo, Pescara og Brescia. Hann tók við U21 árs landsliðinu í fyrra og tryggði því á dögunum sæti á EM á næsta ári.

Hann hefur sterkar skoðanir á því hvernig eigi að spila fótbolta og vill hvorki sjá tafir né dýfur hjá sínum mönnum.

„Ég lagði mikla áherslu á það fyrir leikinn gegn Póllandi að enginn myndi tefja eða rjúfa flæðið í leiknum. Það er óíþróttamannslegt og kemur þeim sjálfum í koll. Þótt við séum 2-0 eða 3-0 yfir höldum við áfram að spila og það gerðu þeir.“

Baldini segir leikmenn ekki eiga afturkvæmt í liðið ef þeir halda áfram að dýfa sér eftir að hafa fengið aðvörun.

„Ég byrja á að vara þá við. Ef það gerist aftur spila ég þeim ekki. Þurfum við að vinna með þessum hætti? Hjálpar það okkur að þroskast og verða betra fólk?“

Ítalska liðið sýndi mikla ákefð í undankeppninni og var Baldini bent á að Nicolo Pisilli, leikmaður Roma, hefði haldið áfram að pressa af fullum krafti fram að lokaflauti.

„Þú verður að leggja þig allan fram þangað til dómarinn flautar leikinn af. Hvers konar fordæmi gefurðu ef þú slakar á eða reynir að vera sniðugur? Þegar ég tók við liðinu sagðist ég vonast eftir góðum úrslitum en fyrst og fremst vilja hjálpa þessum strákum að þroskast og verða að mönnum. Ef þú reynir að fara styttri leiðina í lífinu kemur það í bakið á þér.“

„Ég segi þeim alltaf að hugsa ekki um að verða ríkir og frægir heldur finna gleðina í fótboltanum, eins og þegar þeir voru krakkar og þetta snerist bara um að hafa gaman. Þeir verða að haga sér vel, líka inni á vellinum, ekki eins og þessi boltastrákur í Armeníu,“
sagði Baldini.

U21 árs liðið virðist í góðum höndum en Ítalía vann riðilinn með 27 stig, jafnmörg og Pólland. Betri markatala í innbyrðisviðureignum skilaði Ítölum toppsætinu en bæði lið komust þó beint á lokamótið.
Vill útrýma dýfum úr boltanum - „Þá spila ég honum ekki“
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.