Fotbolti.net
09.11.19 - 23:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson

Potter hrósar James: Hraði hans er ótrúlegur

Daniel James.

Daniel James.

Canon

Mynd: Getty Images

Manchester United fær Brighton í heimsókn á Old Trafford á morgun, flautað verður til leiks klukkan 14:00.
Í liði Rauðu djöflanna er leikmaður sem Graham Potter knattspyrnustjóri Brighton þjálfaði á sínum tíma hjá Swansea. Potter ræddi um Daniel James við blaðamenn á blaðamannafundi fyrir leikinn.

„Það eru miklir hæfileikar í Daniel (James). Hraði hans er ótrúlegur, hann tók stórt skref upp á við og hann hefur tæklað það frábærlega, hann höndlar það vel að spila á hæsta stigi.”

„Að aðlagast hjá félagi eins og Manchester United eftir að hafa komið beint úr Championship deildinni er ekki auðvelt en hann hefur staðið sig mjög vel. Það fylgir alltaf ákveðin óvissa þegar maður tekur svona stórt skref upp á við,” sagði Potter.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.