Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 09. desember 2019 16:30
Magnús Már Einarsson
Lallana ekki með Liverpool í leiknum mikilvæga
Adam Lallana.
Adam Lallana.
Mynd: Getty Images
Adam Lallana verður fjarri góðu gamni þegar Liverpool mætir Salzburg í lokaumferðinni í riðlakeppni Meistaradeildarinnar á morgun.

Liverpool ferðaðist til Austurríki í dag en liðið þarf stig úr leiknum á morgun til að gulltryggja sætið í 16-liða úrslitum.

Lallana var heldur ekki með gegn Bournemouth um helgina en hann er að glíma við smávægileg meiðsli.

Dejan Lovren og Georginio Wijnaldum ferðuðust með liðinu en þeir hafa verið tæpir vegna meiðsla.

Leikmannahópur Liverpool: Alisson, Van Dijk, Wijnaldum, Lovren, Milner, Keita, Firmino, Mane, Salah, Gomez, Adrian, Henderson, Oxlade-Chamberlain, Shaqiri, Robertson, Origi, Jones, Kelleher, Alexander-Arnold.

Athugasemdir
banner