Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 09. desember 2019 19:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndband: Andri Fannar minnkaði muninn með skalla
Andri á U19 ára landsliðsæfingu í september.
Andri á U19 ára landsliðsæfingu í september.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Andri Fannar Baldursson er á mála hjá Bologna en hann er uppalinn hjá Breiðablik.

Andri var í október valinn í aðalliðshópinn hjá Bologna í deildarleik en kom ekki við sögu.

Sjá einnig: Andri Fannar: Það stærsta á ferlinum til þessa

Í dag byrjaði hann á bekknum hjá U19 ára liði Bologna þegar liðið sótti Pescara heim. Andri kom inn á í stöðunni 2-0 fyrir Pescara á 60. mínútu. Á 75. mínútu leiksins minnkaði Andri muninn með skallamarki af stuttu færi.

Pescara skoraði þriðja mark sitt undir lok leiks og sigraði 3-1. Markið hjá Andra má sjá hér að neðan. Þetta er annað mark Andra í vetur hjá U19 ára liði félagsins en fyrra markið kom í sigri á Sampdoria í október.

Bologna er í 7. sæti U19 ára deildarinnar með fimmtán stig eftir ellefu umferðir.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner
banner