10.02.22 - 23:31
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Reykjavíkurmót kvenna: Þróttur meistari í fyrsta sinn

Mynd: Einar Jónsson

Mynd: Einar Jónsson

Fjölnir 1 - 6 Þróttur R.
0-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir
0-2 Freyja Karín Þorvarðardóttir
0-3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
0-4 Ragnheiður Ríkharðsdóttir
0-5 Sóley María Steinarsdóttir
1-5 Sara Montoro
1-6 Katla Tryggvadóttir
0-1 Freyja Karín Þorvarðardóttir
0-2 Freyja Karín Þorvarðardóttir
0-3 Ólöf Sigríður Kristinsdóttir
0-4 Ragnheiður Ríkharðsdóttir
0-5 Sóley María Steinarsdóttir
1-5 Sara Montoro
1-6 Katla Tryggvadóttir
Þróttur Reykjavík varð í kvöld Reykjavíkurmeistari kvenna í fyrsta sinn í sögu félagsins.
Þróttur þurfti sigur gegn Fjölni til þess að tryggja sér titilinn. Með því að misstíga sig, þá myndu þær opna á tækifæri fyrir Val til að taka titilinn.
Þróttur var hins vegar aldrei nálægt því að kasta þessu tækifæri frá sér. Freyja Karín Þorvarðardóttir, sem kom til Þróttar frá Fjarðab/Hetti/Leikni, gerði fyrstu tvö mörkin snemma og bætti Ólöf Sigríður Kristinsdóttir við þriðja markinu fyrir hlé.
Ragnheiður Ríkharðsdóttir skoraði fjórða markið og bætti Sóley María Steinarsdóttir við fimmta markinu eftir hornspyrnu. Sara Montoro minnkaði muninn fyrir Fjölni áður en Katla Tryggvadóttir innsiglaði sigurinn af vítapunktinum.
Lokatölur 1-6 fyrir Þrótt og þær eru Reykjavíkurmeistarar. Sigur þeirra á Íslandsmeisturum Vals var það sem gerði útslagið í þessu móti; frábær árangur.