Fotbolti.net
10.02.23 - 16:00
Elvar Geir Magnússon

Jese til Sampdoria (Staðfest)

Jese til Sampdoria (Staðfest)
Canon

Mynd: Sampdoria

Sampdoria hefur samið við sóknarmanninn Jese Rodriguez sem kemur á frjálsri sölu.

Þessi 29 ára Spánverji er fyrrum leikmaður Real Madrid og PSG en hann var síðast hjá tyrkneska félaginu Ankaragücü. Hann rifti samninngi við félagið í janúar.
Hann hefur gert samning við Sampdoria, sem er í fallsæti í ítölsku A-deildinni, út tímabilið.

Jese vann Meistaradeildina tvívegis með Real Madrid en hann skoraði 18 mörk í 94 leikjum fyrir félagið. Hjá PSG skoraði hann tvö mörk í 18 leikjum.

Sampdoria er í 19. sæti á Ítalíu með 10 stig eftir 21 leik. Liðið hefur aðeins skorað 10 mörk en það fær Inter í heimsókn í næsta deildarleik á mánudaginn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.