Keflavík fær finnskan markvörð (Staðfest)


Mynd: Keflavík/Facebook


Mynd: Keflavík/Facebook

Keflavík hefur samið við finnskan markvörð að nafni Vera Varis en hún gerir samning út sumarið 2024. Hún er fædd árið 1994.
Hún var í liði Kups sem vann finnsku deildina á síðasta tímabili en þar á undan spilaði hún þrjú tímabil í efstu deild í Svíþjóð.
Samantha Murphy varði mark Keflavíkur á síðustu leiktíð og var ein af bestu markvörðum deildarinnar en er gengin til liðs við Pitea í Svíþjóð.
„Við bjóðum Veru hjartanlega velkomna til okkar í Keflavík og erum mjög ànægð að fá til okkar reynslumikla konu til að verja mark okkar næstu tímabil," segir í tilkynningu frá félaginu.
Komnar
Eva Lind Daníelsdóttir frá Grindavík
Linli Tu frá Fjarðabyggð/Hetti/Leikni
Madison Wolfbauer frá ÍBV
Sandra Voitane frá ÍBV
Ástrós Lind Þórðardóttir frá ÍR (var á láni)
Farnar
Samantha Leshnak Murphy til Piteå
Jóhanna Lind Stefánsdóttir í Víking
Elín Helena Karlsdóttir í Breiðablik (var á láni)
Snædís María Jörundsdóttir í Stjörnuna (var á láni)




