„Það er mjög sárt að ná ekki í sigur í kvöld," sagði Thomas Frank, stjóri Tottenham, eftir 1-2 tap gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni. Hrakfarir Tottenham halda áfram en liðið er í fallbaráttu.
„Ég sé lið sem hleypur og gefur allt í þetta. Newcastle voru betri í fyrri hálfleiknum en við komum til baka í seinni hálfleiknum og jöfnuðum. Eftir það þá kom slæm sending, við vörðumst illa og staðan er 2-1. Við vorum ekki með nægilega mikið til að komast aftur í leikinn."
„Það er óhætt að segja að meiðslin séu að stríða okkur. Þetta er ekki lið í miklu flæði með mikið sjálfstraust. Newcastle hefur byggt hóp sinn betur síðustu ár."
„Við skiljum að við erum ekki í góðri stöðu og við þurfum að koma okkur úr henni. Ég skil pirringinn og það er auðveldast að benda á mig. Það er hluti af starfinu því miður. Ég mun vinna dag og nótt til að snúa þessu við."
Frank var þá spurður hvort að hann væri hræddur um að missa starf sitt.
„Ég talaði við eigendurna í gær. Þannig að nei," sagði Frank þá.
Athugasemdir



