Blaðamennirnir Ben Jacobs og Alex Crook segja brasilíska markvörðinn Alisson færast nær ítalska félaginu Juventus.
Alisson er 33 ára gamall og verið einn allra besti markvörður heims síðustu ár eða síðan hann kom til Liverpool frá Roma fyrir 66,8 milljónir punda fyrir átta árum.
Hann er með samning hjá Liverpool út næsta tímabil en það eru yfirgnæfandi líkur á því að hann verði seldur frá félaginu í sumarglugganum.
Crook og Jacobs segja Juventus vera að færa viðræður við Alisson á næsta stig. Kaupverðið kemur ekki fram en talið er hann muni kosta Juventus 12 milljónir punda.
Samkvæmt Nicolo Schira hefur Alisson samþykkt þriggja ára samning þar sem hann mun þéna um fimm milljónir evra í árslaun.
Georgíski markvörðurinn Giorgi Mamardashvili er arftaki Alisson hjá Liverpool, en enska félagið mun skoða markaðinn til þess að vinna markvörð til að veita honum samkeppni á næstu leiktíð.

