Gunnar Heiðar: Fegurðin að fá sigurinn svona á lokamínútunum


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Þetta er framhald af því sem við erum búnir að vera að gera í síðustu leikjum. Þetta er kannski ekki alveg búið að vera detta með okkur, en ég get alveg sagt þér það að öll tölfræði síðustu leiki hefur sýnt það að við erum klárlega á réttri leið. Við erum á þeirri leið sem við viljum fara, og að klára fyrri umferðina á mótinu svona, plús það að vera búinn að byggja ofan á í síðustu leikjum. Mér finnst við eiga mikið inni og ég hlakka mjög til seinni helmingsins í mótinu," sagði Gunnar.
Loka mínúturnar á leiknum voru svakalegar, þar sem HK fær tvö rauð spjöld á sig, en skora einnig annað mark sitt til að gulltryggja sigurinn.
„Þetta voru náttúrulega bara ótrúlegar mínútur. Ég hef bæði spilað á móti Fylki hérna í Árbænum og hef komið hingað nokkrum sinnum sem þjálfari og það er alltaf erfitt að koma hingað. Þeir sýndu það að þetta er hörku lið og við sýndum það líka að við getum verið hörku lið ef við gerum nákvæmlega það sem við þurfum að gera. Sem við gerðum hér í dag, alvöru karakter, alvöru barátta, sýndum það að við erum helvíti góðir þegar við vinnum saman. Svo gerist þetta allt í lokin og mér fannst að við hefðum átt að vera komnir með annað mark fyrr og ekki þurfa að setja þetta upp í einhverja svona vitleysu. Ég veit ekki með fyrsta rauða spjaldið, hvort Svavar sé aftasti maður, ég veit það ekki. En þetta er bara eins og það er, við þurfum bara að eiga við þetta. Dómarinn dæmir þetta og það þýðir ekkert að tauta yfir því, það er bara áfram gakk," sagði Gunnar.
Aron Kristófer Lárusson skorar svo annað mark HK á loka mínútum sem tryggði þeim sigurinn. Markmaður Fylkis var þá kominn upp að miðjuboganum til að taka á móti hreinsunum, en Aron komst framhjá honum með boltann og endaði á að skora í opið markið.
„Já hann var náttúrulega nýkominn inn á og var með fullt af orku og hann sá bara hvernig leikurinn var búinn að vera að spilast. Hann tók bara sénsinn að fara þarna og sá það að hann þurfti bara einn bolta nálægt sér til þess að búa sér til þetta frábæra færi alveg út í kanti og setja hann innan fótar í markið. Þetta er fegurðin að klára þetta og fá sigurinn svona á lokamínútunum. Það er virkilega gott," sagði Gunnar
Viðtalið má sjá í spilaranum hér fyrir ofan.




