Heimir Guðjóns: Vorum tveimur fleiri en komum boltanum ekki inn í teiginn


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Það er bara vonbrigði að tapa hérna á heimavelli," sagði Heimir Guðjónsson þjálfari Fylkis eftir 2-0 tap fyrir HK í kvöld.
„Mér fannst við byrja þennan leik ágætlega og náðum upp ágætis spili. Kannski var ákvarðanatakan á síðasta þriðjung ekki alveg nógu góð. Svo þegar leið á fyrri hálfleikinn þá svona ýttu þeir okkur úr okkar leik, og voru fýsískir, við bara réðum ekki við það. Markið kemur þannig, eftir langt innkast þar sem við erum bara ekki að ýta nógu vel frá okkur og lendum undir. Við reyndum í seinni hálfleik en sendingarnar hjá okkur voru bara svo lélegar nánast allan leikinn. Einfaldar sendingar sem voru að klikka, við fengum auðvitað einhver færi, og ég hefði auðvitað bara viljað að hann hefði sleppt Gumma þarna í gegn. Ég hafði ekkert með rautt spjald að gera, svo vorum við orðnir tveimur fleiri en náum samt ekki að koma boltanum inn í teiginn hjá þeim," sagði Heimir.
Fylkismenn komust í nokkrar ágætar stöður og fín færi í leiknum, en voru aldrei líklegir til að nýta sér það.
„Það voru bara einfaldar sendingar sem að klikka og mér fannst lærdómurinn á milli leikja, fyrri hálfleikur og seinni hálfleikur á móti Gróttu, mér fannst lærdómurinn ekki skila sér í dag," sagði Heimir.
Loka mínúturnar urðu æsi spennandi eftir að leikurinn í heild hafði verið frekar bragðdaufur.
„Við reyndum að ná inn jöfnunarmarki og fórum í þriggja manna, og settum Gumma (Guðmund Tyrfingsson) inn í teig, og Aron (Snæ Guðbjörnsson). Við reyndum og reyndum, en auðvitað áttu þeir líka möguleika í skyndisóknum. Þó þetta hafi verið spennandi, þá endaði þetta ekki nógu vel fyrir okkur," sagði Heimir.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér fyrir ofan.




