Ray Anthony: Ánægður með það hvað við vorum svekktir


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Grindavík tók á móti Ægi á Stakkavíkurvelli í 11. umferð Lengjudeildar karla og fóru leikar 0-0 í nokkuð bragðdaufum leik. Fótbolti.net var á staðnum og heyrði í Ray Anthony Jónssyni, þjálfara Grindavíkur, eftir leikinn.
„Enn og aftur er ég svekktur eftir leik. Við vorum mikið með boltann og vorum að skapa færin en slúttin voru það sem var að klikka hjá okkur.''
Grindvíkingar voru samt sem áður að skapa fleiri færi en í síðustu leikjum en tókst samt sem áður ekki að skora.
„Við vorum heilt yfir góðir í leiknum en bara náum ekki að skora. En eins og ég segi þá vantar meira hjá okkur á síðasta þriðjungnum.''
Rúnar Ingi Eysteinsson klikkaði á dauðafæri en markið var opið en hann setti boltann fram hjá markinu.
„Já það var gríðarlega svekkjandi, Gulli fær síðan líka færi einn á móti markmanni og skýtur yfir. Við þurfum bara að halda áfram og klára þessar álitlega stöður. Ég er samt ánægður með það hvað við vorum svekktir með stigið eftir þennan leik. Við reyndum og reyndum og reyndum og menn lögðu sig fram en það vantar aðeins upp á.''
Viðtalið í heild sinni má sjá í spilaranum að ofan.




