Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 10. júní 2021 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Milan hefur áhyggjur af Zlatan - Gæti verið lengi frá
Zlatan Ibrahimovic
Zlatan Ibrahimovic
Mynd: Getty
Ítalska félagið AC Milan hefur miklar áhyggjur af ástandi sænska framherjans Zlatan Ibrahimovic en þetta kemur fram í frétt Milan Reports.

Zlatan, sem er 39 ára gamall, meiddist undir lok tímabilsins en hann þurfti að draga sig úr sænska landsliðshópnum sem fer á Evrópumótið.

Hann fór meiddur af velli í 3-0 sigrinum á Juventus en hann fann til í hnénu.

Samkvæmt Milan Reports eru meiðslin af alvarlegum toga en Milan hefur verulega áhyggjur af leikmanninum og óttast að hann verði lengi frá.

Zlatan var einn mikilvægasti leikmaður liðsins á leiktíðinni og hjálpaði liðinu að komast aftur í Meistaradeildina en hann skoraði 15 mörk í 19 deildarleikjum.
Athugasemdir
banner