Heimild: Vísir
Fundur Daníels Tristans Guðjohnsen og Lionel Messi eftir leik Íslands gegn Argentínu í nótt hefur verið mikið í umræðunni í dag.
Daníel heilsaði upp á Messi eftir leikinn og spurði hvort Argentínumaðurinn þekkti sig en Messi og Eiður Smári Guðjohnsen, pabbi Daníels, spiluðu saman á sínum tíma hjá Barcelona.
Daníel var í viðtali í Reykjavík Síðdegis á Bylgjunni og var spurður út í samskiptin.
„Ég labbaði bara upp að honum og spurði hann bara hvort hann myndi eftir mér frá því að ég var þarna lítill strákur með pabba í Barcelona,“ sagði Daníel Tristan.
„Hann sagðist ekki alveg muna en svo náttúrulega þegar hann fattaði að ég væri Guðjohnsen, þá var þetta bara spjall um pabba og hvar ég væri að spila og eitthvað svona."
Daníel vildi fá treyjuna hans Messi en Jón Dagur Þorsteinsson fékk treyjuna sem Messi spilaði í. Sá argentíski reddaði málunum og Daníel sótti treyju Messi inn í klefa.
„Við fórum strákarnir til að redda einhverjum treyjum og þá vildi hann fá númer 22 merkt Guðjohnsen og ég fékk treyjuna hans þá,“ sagði Daníel.
Messi bað Daníel um að skila kveðju til pabba síns.
,Já, við erum félagar, við Messi,“ sagði Daníel léttur. „Já, hann sagði mér að heilsa bara fjölskyldunni og pabba og þannig. Það var gott,“ sagði Daníel að lokum.




