Dómarinn Omar Artan er kominn heim til Sómalíu eftir að honum var meinaður inngangur í Bandaríkin þar sem hann átti að vera einn af dómurunum á HM.
Engar skýringar hafa verið gefnar út af útlendingastofnun Bandaríkjanna en Sómalía er eitt af þeim löndum sem strangar ferðatakmarkanir gilda um eftir reglur sem stjórn Donald Trump setti.
Artan, sem var valinn dómari ársins í Afríku, mun ekki dæma á HM en hefur sett stefnuna á að dæma í keppninni 2030.

Múgur og margmenni tóku á móti Artan á flugvellinum þegar hann kom aftur heim til Sómalíu. Þar mátti meðal annars sjá áhrifavalda, stjórnarmenn sómalíska fótboltasambandsins og kollega hans úr dómarastéttinni.
„Ég vil þakka fyrir stuðninginn. FIFA hefur sýnt mér stuðning og verið í góðu sambandi við mig á heimferðinni til Mógadísjú. Ég lofa ykkur því að ég mun dæma á næsta HM," sagði Artan.
Artan fór í ellefu klukkustunda yfirheyrslu hjá bandarískum yfirvöldum þegar hann lenti á flugvellinum í Miami. Hann var svo settur í klefa í nokkrar klukkustundir og síðan sendur aftur til Istanbúl.
Somali soccer referee Omar Abdulkadir Artan arrived in his home country's capital, Mogadishu, to a rapturous welcome by fans and officials, after he was denied entry into the United States ahead of the World Cup https://t.co/bg7FaxN2tn pic.twitter.com/XrtPeogBHL
— Reuters (@Reuters) June 10, 2026