Eitt eftirminnilegasta HM augnablik sögunnar átti sér stað í Suður-Afríku 2010. Frakkar, sem höfðu farið í úrslit fjórum árum áður og tapað í vítaspyrnukeppni gegn Ítalíu, mættu til Suður-Afríku með lið fullt af stórstjörnum. Patrice Evra var bakvörður Manchester United, Nicolas Anelka lék fyrir Chelsea, Franck Ribéry var einn besti kantmaður heims og Thierry Henry var enn hluti af hópnum. Á pappír átti þetta að vera lið sem færi langt, jafnvel alla leið.
Það varð hins vegar fljótt ljóst að eitthvað mikið var að.
Streymisveitan Netflix hefur nýlega rifjað upp þessa sögu í heimildarmyndinni „The Bus: A French Football Mutiny" þar sem þátttakendur segja frá einum stærsta skandal sem hefur átt sér stað á heimsmeistaramóti. Í myndinni, sem er mjög áhugaverð, kemur fram að vandamálin byrjuðu löngu áður en fyrsta flautan gall í Suður-Afríku. Samband leikmanna og landsliðsþjálfarans Raymond Domenech var í molum, vantraust ríkti innan hópsins og margir leikmenn báru ekki neina virðingu fyrir þjálfaranum.
Frakkar hófu mótið með markalausu jafntefli gegn Úrúgvæ. Næst kom 2-0 tap gegn Mexíkó og þar má segja að allt hafi sprungið.
Anelka sendur heim
Í hálfleik gegn Mexíkó lenti Nicolas Anelka, sóknarmaður Frakka, í harkalegum orðaskiptum við Domenech, landsliðsþjálfarann. Forsíða franska dagblaðsins L'Équipe daginn eftir varð ein sú frægasta í sögu íþróttafjölmiðla. Þar var haft eftir Anelka að hann hefði sagt við Domenech: „Va te faire enculer, sale fils de pute." sem má lauslega þýða sem: „Farðu til fjandans, andskotans tíkarsonur."
Anelka hefur síðar haldið því fram að hann hafi aldrei sagt þessi orð, en skaðinn var skeður. Málið var komið í hámæli og samband leikmanna, þjálfara og franska fótboltasambandsins var að hrynja fyrir opnum tjöldum.
Leikmennirnir ákváðu að standa saman gegn ákvörðun Domenech og sambandsins, að senda Anelka heim af mótinu. Tveimur dögum fyrir lokaleikinn í riðlinum gegn Suður-Afríku mættu þeir á æfingasvæðið í Knysna, en neituðu að stíga út úr liðsrútunni. Fyrir framan myndavélar heimsins sat franska landsliðið innilokað í rútunni á meðan Domenech stóð fyrir utan og las yfirlýsingu frá leikmönnum þar sem þeir fordæmdu meðferðina á Anelka.
Myndin af kyrrstæðri rútunni varð samstundis eitt eftirminnilegasta augnablik í sögu HM.
Allt fór í háaloft
Franska þjóðin fylgdist agndofa með. Fjölmiðlar töluðu um þjóðarskömm. Stjórnmálamenn blönduðu sér í umræðuna. Það sem átti að vera skemmtilegt heimsmeistaramót var orðið að þjóðarkreppu. Heimildarmyndin frá Netflix bendir á að átökin hafi snúist um miklu meira en eitt rifrildi í hálfleik. Þar hafi mæst vanhæf stjórnun, sundraður leikmannahópur, fjölmiðlaumfjöllun og djúpstæð togstreita sem hafði kraumað árum saman. Liðið var löngu hætt að virka.
Patrice Evra, fyrirliði liðsins, varð fljótt andlit uppreisnarinnar. Hann tók opinberlega upp hanskann fyrir leikmannahópinn og var ítrekað í átökum við starfsfólk og forráðamenn landsliðsins. Samband hans og Domenech hafði lengi verið stirt og í Knysna virtist fyrirliðinn í raun standa öðrum megin víglínunnar á meðan landsliðsþjálfarinn stóð hinum megin.
Domenech varð aldrei samur eftir sumarið í Suður-Afríku. Þótt samband hans við leikmannahópinn hafi verið slæmt fyrir HM og margir gagnrýnt vinnubrögð hans, varð hann í augum margra andlit alls þess sem fór úrskeiðis hjá Frökkum. heimildarmynd Netflix er dregin upp mynd af manni sem stóð að lokum nokkuð einn í storminum, hann missti stjórnina gjörsamlega. Eftir HM lét hann af störfum sem landsliðsþjálfari og þjálfaraferill hans fjaraði út.
Frakkar töpuðu 2-1 fyrir gestgjöfum Suður-Afríku í lokaumferð riðilsins og enduðu neðstir með eitt stig úr þremur leikjum. Mörgum leikmönnum var refsað í lokaleiknum og spiluðu ekki. Frakkar skoruðu aðeins eitt mark á öllu mótinu og flugu heim í skömm. Fyrir marga Frakka var þetta versta stund í sögu landsliðsins.
Frakkar á meðal líklegustu liða í sumar
Það sem gerir söguna enn áhugaverðari í dag er að deilurnar eru ekki allar grafnar. Heimildarmynd Netflix hefur opnað gömul sár og kveikt nýjar deilur um hver hafi raunverulega borið ábyrgð. Sumir fyrrverandi leikmenn telja að þeir hafi verið gerðir að blórabögglum á meðan aðrir benda á að leikmennirnir hafi sjálfir farið langt yfir strikið. Domenech hefur meira að segja gagnrýnt myndina harðlega og sagt hana gefa skakka mynd af atburðunum.
Sextán árum síðar eru Frakkar aftur meðal stærstu fótboltaþjóða heims og eru taldir líklegastir til afreka í sumar ásamt Spánverjum. Þeir hafa tvisvar síðan leikið til úrslita á HM og urðu heimsmeistarar 2018. En þegar rætt er um stærstu klúður, skandala eða hrun í sögu HM er enn byrjað á sömu myndinni.
Myndin er af rútu sem stóð kyrr á meðan eitt hæfileikaríkasta landslið heims sundraðist fyrir framan augu heimsins.
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!



