Það eru fjórir vináttulandsleikir á dagskrá í dag og í kvöld þar sem þrjár HM-þjóðir mæta til leiks á síðasta deginum fyrir upphafsflaut heimsmeistaramótsins.
Portúgal tekur á móti Nígeríu í spennandi slag skömmu fyrir flug til Texas þar sem fótboltaþjóðin mikla hefur keppni á HM gegn Austur-Kongó.
England spilar svo við Kosta Ríka í Flórída en þjóðirnar voru saman í riðli á HM 2014. Þær gerðu markalaust jafntefli og mistókst Englandi að komast áfram í næstu umferð ásamt Ítalíu, á meðan Kosta Ríka og Úrúgvæ fóru í útsláttarkeppnina.
Alsír spilar að lokum við Bólivíu, en Alsíringar eru með Argentínu, Austurríki og Jórdaníu í riðli.
Vináttulandsleikir dagsins
16:00 Pakistan - Afganistan
19:45 Portúgal - Nígería
20:00 England - Kosta Ríka
00:00 Bólivía - Alsír
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!





