10.07.12 - 10:40
Magnús Már Einarsson
Peter Lovenkrands til Birmingham (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Birmingham City hefur fengið danska framherjann Peter Lovenkrands til liðs við sig.
Lovenkrands kemur frítt til Birmingham frá Newcastle en samningur hans þar rann út á dögunum.
Þessi 32 ára gamli leikmaður skrifaði undir tveggja ára samning við Birmingham.

Lovenkrands kom til Newcastle frá Rangers í janúar árið 2009 og skoraði 29 mörk með liðinu.
Hann er fyrsti leikmaðurinn sem Lee Clark fær til Birmingham eftir að hann tók við stjórnartaumunum af Chris Hughton.

Heimild: BBC