Fotbolti.net
10.07.12 - 11:10
Magnús Már Einarsson

Chico til Swansea (Staðfest)

Chico til Swansea (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Swansea hefur keypt spænska varnarmanninn Jose Manuel Flores frá Genoa á tvær milljónir punda.

Flores, eða Chico eins og hann er kallaður, skrifaði undir þriggja ára samning við Swansea.
Þessi 25 ára gamli leikmaður er fyrsti leikmaðurinn sem Swansea fær síðan Michael Laudrup tók við liðinu á dögunum en þeir þekkjast eftir að Chico var í láni hjá Mallorca á síðasta tímabili þar sem Daninn var við stjórnvölinn.

,,Ég er mjög ánægður með að vera hér,\" sagði Chico eftir að hann skrifaði undir.

,,Ég veit að ég er að ganga til liðs við félag sem hefur vaxið undanfarin ár og hefur metnað til að fara ennþá hærra.\"

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.