10.07.12 - 19:30
Magnús Már Einarsson
Jonathan de Guzman til Swansea (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Swansea hefur fengið miðjumanninn Jonathan de Guzman á láni frá Villarreal.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er fæddur í Kanada en hann er með hollenskt vegabréf.
Þessi 24 ára gamli leikmaður er fæddur í Kanada en hann er með hollenskt vegabréf.
De Guzman lék með Feyenoord áður en hann gekk til liðs við Mallorca árið 2010. Hann fór síðan í kjölfarið til Villarreal.
De Guzman er annar leikmaðurinn sem Michael Laudrup fær til Swansea í dag en í morgun kom varnarmaðurinn Jose Manuel Flores til félagsins frá Genoa.
De Guzman er annar leikmaðurinn sem Michael Laudrup fær til Swansea í dag en í morgun kom varnarmaðurinn Jose Manuel Flores til félagsins frá Genoa.
Heimild: BBC
