Fotbolti.net
10.07.12 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Alan Smith til MK Dons (Staðfest)

Alan Smith til MK Dons (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Alan Smith hefur skrifað undir tveggja ára samning við MK Dons í ensku fyrstu deildinni.

Samningur Smith við Newcastle rann út á dögunum og því kemur hann frítt til MK Dons.

Smith þekkir til hjá félaginu því hann lék 18 leiki með MK Dons á láni á síðasta tímabili.
,,Það voru nokkur félög í efri deildum sem höfðu áhuga á mér en ég held að ég sé kominn á fullkominn stað fyrir mig á þessu stigi ferilsins,\" sagði Smith.

Þessi 31 árs gamli leikmaður hefur ekki náð sér almennilega á strik síðan hann fótbrotnaði í leik Manchester United og Liverpool á Anfield í febrúar árið 2006.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.