Fotbolti.net
10.07.12 - 19:59
Þórður Már Sigfússon

Birkir Bjarnason til Pescara (Staðfest)

Birkir í leik með U-21 árs landsliðinu.

Birkir í leik með U-21 árs landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Landsliðsmaðurinn Birkir Bjarnason hefur gengið til liðs við ítalska úrvalsdeildarliðið Pescara á lánssamningi frá Standard Liege í Belgíu. Norskir fjölmiðlar greina frá þessu í kvöld.
Samkvæmt heimildum Fótbolti.net gekkst Birkir undir læknisskoðun í dag og skrifaði í kjölfarið undir samning við Pescara.

Pescara hefur einnig tryggt sér forkaupsrétt á Birki en heimildir Fótbolti.net herma að standi leikmaðurinn undir væntingum mun ítalska liðið þurfa að greiða Standard Liege rúmar 150 milljónir íslenskra króna fyrir Birki næsta sumar.

Birkir gekk til liðs við Standard Liege frá norska úrvalsdeildarliðinu Viking í janúar síðastliðinn og var dvöl hans í Belgíu því með stysta móti.

Heimild: Nettavisen

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.