Fotbolti.net
10.07.26 - 08:00
Ívan Guðjón Baldursson

Mbappé maður leiksins: Er ekki meiddur

Mbappé maður leiksins: Er ekki meiddur
Canon

Mynd: EPA

Kylian Mbappé var besti leikmaður vallarins er Frakkland lagði Marokkó að velli í 8-liða úrslitum heimsmeistaramótsins í gærkvöldi.
HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó
TENGT EFNI

HM: Þægilegt fyrir Frakkland gegn Marokkó

Mbappé skoraði annað markanna í 2-0 sigri og er kominn með 8 mörk í 6 leikjum á heimsmeistaramótinu. Hann er því í heildina kominn með 20 mörk í 20 leikjum á lokamóti HM, aðeins 27 ára gamall.

Frakkar mæta annað hvort Spáni eða Belgíu í undanúrslitum.

„Það er ennþá langt í úrslitaleikinn. Við vitum að næstu leikir verða erfiðari en þessir sem við höfum spilað hingað til. Við erum tilbúnir í hvað sem kemur næst," sagði Mbappé eftir lokaflautið.

„Þetta er ekki sterkasta franska landsliðið en þetta er það efnilegasta. Bestu liðin eru þau sem fara alla leið og sigra!"

Mbappé var skipt af velli á 77. mínútu eftir að hann var tæklaður nokkuð harkalega, en hann segist ekki vera meiddur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.