Fotbolti.net
10.07.26 - 06:00
Guðmundur Jónasson

Damak og Siggi í Hamrana (Staðfest)

Jordan Damachoua í leik með Kórdrengjum.

Jordan Damachoua í leik með Kórdrengjum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hamrarnir hafa nælt sér í góðan liðsstyrk fyrir toppbaráttuna í 5. deild, þeir kynntu tvo nýja leikmenn í vikunni.

Jordan Damachoua er 34 ára miðjumaður sem er genginn til liðs við Hamranna og hefur nú þegar spilað sinn fyrsta þar sem hann skoraði og var valinn maður leiksins í síðustu umferð.

Hamrarnir tilkynntu Damak á samfélgsmiðlum:


„Við erum gríðarlega ánægð að tilkynna komu Jordans Damachoua til Hamrana!

Jordan kemur til okkar frá Kormáki/Hvöt og býr yfir mikilli reynslu. Hann hefur meðal annars spilað með Þór í Lengjudeildinni, Kórdrengjum í 2. deild og lengst af með KF á Ólafsfirði í 2. og 3. deild.

Jordan er fjölhæfur leikmaður sem getur leyst nánast allar stöður á vellinum. Með komu hans bætist mikil reynsla, gæði og leiðtogahæfileikar inn í hópinn, sem mun nýtast bæði liðinu og ungu leikmönnum félagsins.

Jordan hefur þegar leikið sinn fyrsta leik fyrir Hamrana og var valinn maður leiksins – ekki amaleg byrjun!

Við bjóðum Jordan hjartanlega velkominn í Hamrana og hlökkum til að sjá hann í svörtu og gulu á komandi árum!"

Hamrarnir hafa einnig fengið til sín Sigurð Þórisson sem er 22 ára miðjumaður en hann kemur til Hamranna frá Magna Grenivík.

Sigurður var tilkynntur á samfélgsmiðlum í gærkvöldi og Hamrarnir höfðu þetta að segja:

„Sigurður Brynjar Þórisson í Hamrana!

Við í Hömrunum erum afar ánægð að tilkynna að miðjumaðurinn Sigurður Brynjar Þórisson er kominn til liðs við félagið á láni frá Magna Grenivík út tímabilið.

Sigurður er 22 ára miðjumaður sem hefur áður leikið með Hömrunum í 4. deild og á einnig að baki leik með KA í Bestu deildinni. Undanfarin tvö ár hefur hann gegnt stóru hlutverki hjá Magna í 2. og 3. deild.

Siggi er kominn með leikheimild og verður klár í toppslaginn á laugardaginn! 

Við bjóðum Sigga „Thunder“ hjartanlega velkominn aftur í Hamrana og hlökkum til að sjá hann aftur í svörtu og gulu á vellinum."

Hamrarnir sitja á toppi B-riðils í 5. deild og eiga stórleik gegn Stokkseyri næstkomandi laugardag.

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Hamrarnir7+1118
2Stokkseyri8+1016
3BF 1088+214
4RB9+513
5KB9-612
6Kría9-810
7Léttir9-129
8KM9-27
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.