Fotbolti.net
09.07.26 - 22:44
Ívan Guðjón Baldursson

Xabi Alonso: Undirstöðuatriði sem ekki er hægt að semja um

Xabi Alonso: Undirstöðuatriði sem ekki er hægt að semja um
Canon

Mynd: EPA

Xabi Alonso mætti á æfingasvæðið hjá Chelsea í fyrsta sinn í dag eftir að hann tók við sem aðalþjálfari liðsins.
Fyrstu kaup Alonso klár (Staðfest) - Krækir í besta varnarmann ítölsku deildarinnar
TENGT EFNI

Fyrstu kaup Alonso klár (Staðfest) - Krækir í besta varnarmann ítölsku deildarinnar

Chelsea eru ríkjandi heimsmeistarar en enduðu í tíunda sæti í ensku úrvalsdeildinni eftir hörmulegt gengi á seinni hluta tímabils og misstu þar með af Evrópusæti.

„Það eru nokkur undirstöðuatriði í fótbolta sem fyrir mér er ekki hægt að semja um. Hver einasti leikmaður verður að vera tilbúinn að leggja inn þá vinnu sem er nauðsynleg til að vera samkeppnishæfur á hæsta gæðastigi fótboltans. Liðsheildin skiptir öllu máli og hver einasti leikmaður þarf að gefa sig allan til að hjálpa liðsheildinni. Þetta er menningin sem við viljum skapa hjá Chelsea og það mun taka tíma og vinnu," sagði Alonso í viðtali á Cobham æfingasvæðinu.

„Ég tel þetta félag nú þegar byggja á sterkum menningargrunni, en það er mikilvægt að reynslumeiri leikmenn liðsins miðli menningunni til yngri leikmanna. Það er mikilvægt að hver einasti leikmaður finni fyrir menningunni. Leikmenn þurfa að sýna fagmennsku, vinnusemi og mega aldrei gleyma því að liðið er mikilvægast. Það er enginn einstaklingur sem getur nokkurn tímann orðið mikilvægari heldur en liðið.

„Við verðum að byggja þessa menningu upp hérna og sýna svo stuðningsmönnum þegar við mætum á Stamford Bridge."
Xabi Alonso: Undirstöðuatriði sem ekki er hægt að semja um
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.