Argentínski leikmaðurinn Lionel Messi skoraði þrennu í 4-1 sigri Barcelona á Celta Vigo í spænsku deildinni í gær.
Messi skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu áður en Lucas Olaza jafnaði með marki úr aukaspyrnu.
Messi svaraði þó með því að skora úr tveimur frábærum aukaspyrnum áður en Sergio Busquets gulltryggði sigurinn með skoti rétt fyrir utan teig.
Hægt er að sjá öll mörkin hér fyrir neðan.
Don't miss Messi's majestic free-kicks! 👽👽
— LaLiga (@LaLigaEN) November 9, 2019
📺 Highlights #BarçaCelta pic.twitter.com/k2KIudEebR
Athugasemdir