Fotbolti.net
10.11.26 - 21:08
Brynjar Ingi Erluson

Igor Thiago í þriggja leikja bann

Igor Thiago verður ekki með gegn Everton, Man Utd og Arsenal

Igor Thiago verður ekki með gegn Everton, Man Utd og Arsenal

Canon

Mynd: EPA

Igor Thiago, framherji Brentford, missir af næstu þremur leikjum liðsins eftir að áfrýjun félagsins vegna rauða spjaldsins sem hann fékk um helgina var hafnað.
Brasilíumaðurinn, sem raðaði inn mörkum fyrir Brentford á síðustu leiktíð, fékk að líta rauða spjaldið í 2-0 tapi liðsins gegn Brighton um helgina.

Thiago slengdi þá hendinni í andlit Chema Andres, miðjumanns Brighton, og fékk upphaflega gult spjald fyrir brotið. Eftir skoðun VAR var spjaldinu hins vegar breytt í rautt.

Brentford áfrýjaði rauða spjaldinu á þeim grundvelli að brotið hefði verið óviljaverk og vonaðist til að fá refsinguna mildaða. Áfrýjuninni var hins vegar hafnað og þarf Thiago því að taka út þriggja leikja bann.

Það er mikið áfall fyrir Brentford sem treystir mikið á Brasilíumanninn, en hann hefur skorað tvö mörk og lagt upp önnur tvö í deildinni á tímabilinu.

Thiago missir því af leikjunum gegn Everton, Manchester United og Arsenal, sem gætu reynst mikilvægir í baráttu Brentford um Evrópusæti.

Liðið situr nú í áttunda sæti með 14 stig, aðeins fjórum stigum frá Meistaradeildarsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.