Dino Hodzic skiptir í ÍA (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dino Hodzic hefur fengið félagsskipti til ÍA í gegn frá Kára en þessi 27 ára markvörður mun berjast um stöðuna við Árna Marinó Einarsson.
Dino er króatískur en hann kom hingað til lands árið 2019 til að spila með ÍA. Hann hefur þó aðallega spilað með Kára eða 51 leik. Hann spilaði sex leiki með ÍA sumarið 2021.
Árni Snær Ólafsson gekk til liðs við Stjörnuna í vetur og Árni Marinó skrifaði undir nýjan tveggja ára samning og má búast við því að hann muni verja mark ÍA í upphafi sumars og Dino muni vera til vara.
ÍA leikur í Lengjudeildinni næsta sumar eftir að hafa fallið úr Bestu deildinni.




