Jóhannes Kristinn Bjarnason í KR (Staðfest)

Jóhannes í leik með KR í desember.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Jóhannes í leik með KR í desember.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KR fékk góðan liðsstyrk í morgun þegar Jóhannes Kristinn Bjarnason gekk í raðir félagsins frá Norrköping í Svíþjóð.
Jóhannes verður 18 ára gamall seinna í mánuðinum. Hann er uppalinn hjá KR og hóf meistaraflokksferil sinn hjá félaginu sumarið 2020 þegar hann spilaði einn leik í deild og einn í bikar.
Eftir það tímabil gekk hann svo í raðir Norrköping þar sem hann hefur verið síðan. Hann spilaði einn leik í Allsvenskan þegar hann kom inná gegn Degerfoss 28. nóvember 2021.
Jóhannes sem er sonur Bjarna Guðjónssonar framkvæmdastjóra KR, og miðjumaður eins og pabbi hans var líka, gerir þriggja ára samning við félagið. Hann á að baki 10 leiki með yngri landsliðum Íslands.
Komnir
Jóhannes Kristinn Bjarnason frá Norrköping
Olav Öby frá Fredrikstad
Luke Rae frá Gróttu
Farnir
Arnór Sveinn Aðalsteinsson í Breiðablik
Beitir Ólafsson hættur
Emil Ásmundsson í Fylki
Kjartan Henry Finnbogason í FH
Pálmi Rafn Pálmason hættur
Þorsteinn Már Ragnarsson hættur


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð




