Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   sun 11. apríl 2021 11:10
Ívan Guðjón Baldursson
Fær Haaland milljón evrur í vikulaun?
Powerade
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Mynd: Getty Images
Slúðurpakkinn er á sínum stað á þessum fallega sunnudegi. Það er meðal annars slúðrað um Harry Kane, Erling Braut Haaland, Luis Suarez, Cristiano Ronaldo, Jesse Lingard og Pedri í pakka dagsins.


Harry Kane, 27, ætlar að yfirgefa Tottenham ef félaginu mistekst að landa Meistaradeildarsæti. (The Athletic)

Umboðsmaðurinn Mino Raiola vill gera Erling Braut Haaland að launahæsta leikmanni heims. Markmiðið er að Haaland fái eina milljón evra í vikulaun. Lionel Messi er talinn þéna um hálfa milljón á viku. (Mirror)

Luis Suarez, 34, hefur verið orðaður við endurkomu til Liverpool, sjö árum eftir að hafa yfirgefið félagið fyrir Barcelona. Inter Miami, bandarískt knattspyrnufélag í eigu David Beckham, hefur einnig áhuga á Suarez. (Todofichajes)

Liverpool hefur mikinn áhuga á Pedri, 18 ára miðjumanni Barcelona. Börsungar vita af þessum áhuga og eru búnir að bjóða ungstirninu sínu nýjan samning með 350 milljón evra söluákvæði. (Mirror)

Man Utd hefur áhuga á portúgalska miðjumanninum Ruben Neves, 24, sem leikur fyrir Wolves. Úlfarnir eru reiðubúnir til að selja hann. (90min)

West Ham og Arsenal vilja kaupa Jesse Lingard, 28, frá Man Utd. Þessi sóknarþenkjandi miðjumaður hefur hefur gert frábæra hluti að láni hjá Hömrunum það sem af er árs. (Star)

PSG gæti krækt í Cristiano Ronaldo, 36, til að fylla í skarð Kylian Mbappe, 22, ef hann verður seldur til Real Madrid í sumar. (Tuttosport)

Real Madrid býst við að krækja í Mbappe í sumar. (AS)

Wolves hefur áhuga á Goncalo Guedes, 24 ára framherja Valencia. Úlfarnir vilja bjóða Patrick Cutrone, 23, með í skiptidíl. (Football Insider)

Moise Kean, 21 árs sóknarmaður Everton og ítalska landsliðsins sem er hjá PSG að láni, er orðaður við endurkomu til Juventus. (Tuttosport)

Man Utd og Liverpool eru í kapphlaupi við Everton og Leeds um kaup á Kyron Gordon, 18 ára miðverði Sheffield United. (Daily Mail)

Man Utd vill þá einnig fá Sam Johnstone, 28, aftur til félagsins. Markvörðurinn var seldur frá United til West Brom fyrir þremur árum. (Sun)

Newcastle United fylgist náið með Dion Sanderson, 21 árs varnarmanni Wolves sem leikur að láni hjá Sunderland í C-deildinni. (Chronicle)

Arsenal er að reyna að krækja í annan brasilískan Martinelli. Matheus Martinelli er 19 ára gamall miðjumaður sem leikur fyrir Fluminense. Man Utd hefur einnig áhuga. (Globo Esporte)

Carlo Ancelotti, stjóri Everton, hefur gert Kalidou Koulibaly, 29 ára miðvörð Napoli, að sínu helsta skotmarki fyrir sumargluggann. Kólumbíski miðvörðurinn Yerry Mina, 26, virðist vera á leið frá Everton í ítalska boltann. (Tuttomercato)

Ancelotti stýrði Koulibaly hjá Napoli á sínum tíma og hefur talað niður orðróminn sem tengir Senegalann við Everton. (Liverpool Echo)

Zlatan Ibrahimovic er við það að skrifa undir nýjan samning við AC Milan. (Sky Italia)
Athugasemdir
banner