„Það eru átta vikur síðan ég fór í mjaðmaaðgerð, það var aðgerð tvö. Ég er byrjaður að jogga og svona, þannig boltinn er farinn að rúlla og styttist alltaf í mann. Stefnan er að vera mættur kannski í lok maí eða byrjun júní,“ sagði Víkingurinn Daði Berg Jónsson um mögulega endurkomu aftur inn á völlinn er hann ræddi við Fótbolta.net í höfuðstöðvum KSÍ á dögunum.
Daði Berg eyddi byrjun síðasta tímabils á láni hjá Vestra þar sem hann stóð sig frábærlega og var einn besti leikmaður deildarinnar fyrri hluta móts.
Víkingar tóku ákvörðun um að kalla hann til baka í sumarglugganum, en hann náði ekki að spila með Víkingum vegna erfiðra meiðsla.
Hann sagði frá því að hann væri með íþrótta kviðslit og leitaði sérfræði aðstoðar á Bretlandseyjum og Danmörku. Daði fór síðan í aðgerð fyrir átta vikum og vonar nú að meiðslin séu endanlega að baki.
Meiðslin reyndust honum þung, bæði andlega og líkamlega.
„Ég ætla ekkert að ljúga að þér, þetta er búið að vera ótrúlega erfitt og miklu erfiðara á hausinn heldur en einhvern tímann líkamann. Það þýðir ekkert að hengja haus eitthvað og maður er með gott fólk í kringum sig, vera með hausinn rétt skrúfaðan á og vera klár þegar maður er orðinn heill.“
Daði ræddi við fréttamann Fótbolta.net í bikardrættinum fyrir 16-liða úrslitin og talaði um leikinn gegn HK sem áhugaverðan leik til að snúa til baka. Sá leikur er 13. eða 14. maí en hann vill ekki vera að flýta sér of mikið og mun taka þetta skref fyrir skref.
„Það verður að koma í ljós. Það þýðir ekkert að drífa sig aftur inn á völlinn þegar maður er búinn að vera frá í tíu mánuði, þannig ég er ekkert að drífa mig og við erum með fínasta hóp. Það verður bara að koma í ljós,“ sagði Daði í lokin.




