Everton vill fá Stones aftur - Amad ekki á förum frá Man Utd - Cambiaso orðaður við ensk félög
   mán 11. maí 2026 10:20
Kári Snorrason
Danskir meistarar í fyrsta sinn í 40 ár
Mynd: INSTAGRAM/AGF
AGF varð danskur meistari í gær eftir 40 ára bið þegar liðið lagði Bröndby að velli.

Elías Rafn Ólafsson og félagar í Midtjylland tókst ekki að vinna Nordsjælland þrátt fyrir frábæra frammistöðu íslenska markvarðarins, lokatölur 0-0.

Úrslitin þýddu að AGF gat tryggt sér meistaratitilinn þegar ein umferð er eftir af tímabilinu sem og þeir gerðu.

Tómas Óli Kristjánsson er leikmaður AGF en hann kom við sögu í níu leikjum á tímabilinu og byrjaði hann einn þeirra. Hann var meðal annars valinn besti ungi leikmaðurinn hjá AGF fyrir framgöngu sína á tímabilinu.

AGF fagnar danska meistaratitlinum í sjötta sinn, en félagið hampaði titlinum síðast fyrir fjörutíu árum, árið 1986.
Slapp
banner
banner
banner