Fotbolti.net
11.06.25 - 16:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Nýju mennirnir með City á HM en enginn De Bruyne

Nýju mennirnir með City á HM en enginn De Bruyne
Canon

Mynd: Jónína Guðbjörg Guðbjartsdóttir

Nýju leikmennirnir fjórir, Tijjani Reijnders, Rayan Ait-Nouri, Marcus Bettinelli og Rayan Cherki, verða allir með Manchester City á HM félagsliða.

Þar verða sömuleiðis þeir Rodri og Phil Foden, en Kevin De Bruyne er ekki í hópnum. Rodri er kominn til baka eftir krossbandsslit, Foden var ekki með enska landsliðinu í landsliðsverkefninu sem var að klárast og De Bruyne er við það að ganga í raðir Napoli á frjálsri sölu.

De Bruyne hafði sagt í upphafi sumars að hann yrði líklega ekki með City á mótinu vegna meiðslahættu.
Eins og búist var við er Jack Grealish ekki í hópnum en hann er sterklega orðaður í burtu frá City.

Mateo Kovacic er meiddur og James McAtee fer með enska U21 landsliðinu á EM.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.