Fotbolti.net
23.08.26 - 20:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Kári um Eið Smára: Líst gríðarlega vel á þetta sem Chelsea maður

Auglýsing
Kári um Eið Smára: Líst gríðarlega vel á þetta sem Chelsea maður
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KA tapaði gegn KR í Bestu deildinni í kvöld. Fótbolti.net ræddi við Kára Gautason, leikmann KA, eftir leikinn.
Lestu um leikinn: KA 3 - 5 KR
„Þetta var erfiður leikur. Þeir spila sinn leik gríðarlega vel. Við vorum í miklu veseni sérstaklega í fyrri hálfleik. Við vorum ekki nógu harðir og grimmir," sagði Kári.

Kári skoraði þriðja mark KA undir lok leiksins en þetta var fyrsta mark hans fyrir félagið.

„Það gerði ekki mikið fyrir leikinn en það gerir stöðu mína í nettó í mörkum fyrir KA aðeins skárri. Ég er nettó mínus einn núna, tvö sjálfsmörk og fyrsta markið. Reyni að rétta það af fyrir lok tímabils," sagði Kári.

Kári er mjög spenntur fyrir komu Eiðs Smára Guðjohnsen í þjálfarateymi liðsins.

„Mér líst gríðarlega vel á það, ég sem Chelsea maður. Þetta er mesta goðsögn í sögu Íslands. Mér líst gríðarlega vel á það að sjá hvað hann getur gert fyrir okkur. Hann hefur lært af stórum póstum þannig hann ætti að geta miðlað einhverju til okkar," sagði Kári.

„Hann kemur með mikla yfirvegun og hann segist hafa mikla trú á okkur. Hann er að reyna stappa í okkur stálið fyrir lokakaflann."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.