Fotbolti.net
11.06.25 - 20:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Parker orðaður við Brentford

Parker orðaður við Brentford
Canon

Mynd: EPA

Thomas Frank er að taka við sem stjóri Tottenham en hann tekur við af Ange Postecoglou sem var látinn taka pokann sinn eftir tímabilið.

Liðið vann Evrópudeildina eftir sigur á Man Utd í úrslitum en árangurinn í deildinni var ástæða brottrekstursins þar sem liðið hafnaði í 17. sæti.
Fabrizio Romano segir að Scott Parker, stjóri Burnley, sé á óskalista Brentford en Burnley spilar í úrvalsdeildinni á næstu leiktíð eftir að liðið hafnaði í 2. sæti í Championship deildinni á síðustu leiktíð.

Parker er sagður ánægður hjá Burnley en Brentford er að skoða aðra möguleika í stöðunni.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.