Ber mjög hlýjar tilfinningar til Breiðabliks: Mun aldrei gleyma því augnabliki

Nenad fagnar marki á KR vellinum 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Verið á hliðarlínunni í Þorlákshöfn í tæp átta ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði 25 mörk í 71 leik fyrir Breiðablik samkvæmt blikar.is

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Nenad fagnar marki á KR vellinum 2008.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Hann kom fyrst til Íslands árið 2006 sem leikmaður þegar hann samdi við Breiðablik. Hann spilaði einnig með Þór og KF hér á landi. Á morgun, klukkan 17:30, tekur Ægir á móti Breiðabliki í 8-liða úrslitum Mjólkurbikarsins. Leikurinn fer fram á GeoSalmo vellinum í Þorlákshöfn.
Fótbolti.net ræddi við þjálfarann í dag.
„Ég býst við mjög erfiðum leik. Ég er á því að okkar eini möguleiki til að sigra sé ef Breiðablik klikkar á sínum tækifærum á meðan við nýtum okkar," segir Nenad.
Hvernig er fyrir hann að mæta Breiðabliki?
„Þetta er ný staða fyrir mig, þetta er í fyrsta sinn á mínum ferli, bæði sem þjálfari og leikmaður, þar sem ég mæti Breiðabliki."
„Breiðablik á stað mjög nálægt hjarta mínu og mun alltaf eiga. En það er samt þannig að félagið sem ég starfa fyrir er í forgangi hjá mér. Þess vegna verða engar þannig tilfinningar á meðan leik stendur. Ef við förum áfram, þá verð ég glaðasti maður í heimi."
„Þegar ég lít til baka á tíma minn hjá Breiðabliki þá stendur upp úr hversu velkominn ég var þar af öllum hjá félaginu. Að vinna með Óla Kristjánssyni og Arnari Bill Gunnarssyni, tveimur fótboltaséníum, mótaði mig mikið bæði sem persónu og einnig sem fótboltamann og þjálfara. Ég man líka vel eftir sterku liðsheildinni, vinskapnum og samverunni með hópnum."
„Ef ég á að velja eina sérstaka minningu, þá væri það 2-1 útisigurinn gegn KR (20. maí 2008) þegar ég skoraði bæði mörkin. Það er augnablik sem ég mun alltaf muna eftir," segir Nenad. Ólafur Kristjánsson, þjálfari Breiðabliks á þeim tíma, varð einmitt fertugur sama dag.
Hann kom til Breiðabliks árið 2006 þegar Bjarni Jó var þjálfari liðsins. Nenad segir að hann hafi farið til Breiðabliks í gegnum Goran Kristófer Micic sem var milligöngumaður í félagaskiptunum frá Serbíu.
Einhver skilaboð til stuðningsmanna að lokum?
„Mig langar að bjóða báðum stuðningsmannahópum til að mæta á leikinn og njóta leiksins. ég vona að þetta verði frábær fótboltaleikur," segir Nenad að lokum.

Verið á hliðarlínunni í Þorlákshöfn í tæp átta ár.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Skoraði 25 mörk í 71 leik fyrir Breiðablik samkvæmt blikar.is

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Óli Kristjáns þjálfaði Nenad hjá Breiðabliki.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Nenad fer fögrum orðum um Arnar Bill og Óla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Myndir af Nenad hjá Blikum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson


Mynd: FH.is


Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Þór Veruson


Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson



