Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 22:17
Brynjar Ingi Erluson
Bernardo Silva til Real Madrid - „Here we go!“
Bernardo Silva
Bernardo Silva
Mynd: EPA
Bernardo Silva hefur samþykkt að ganga í raðir Real Madrid á Spáni, en Fabrizio Romano hefur sett stimpilinn á félagaskiptin með frasanum fræga: „Here we go!“.

Viðræðurnar gengu hratt fyrir sig. Jose Mourinho var ráðinn nýr þjálfari Madrídinga og bað sérstaklega um að fá Bernardo til félagsins.

Portúgalinn rennur út á samningi hjá Manchester City um mánaðamótin og hefur tilkynnt að hann sé á förum eftir mjög farsælt samstarf.

Hann hefur nú samþykkt að gera tveggja ára samning við Real Madrid með möguleika á ári til viðbótar.

Samkomulag er í höfn og báðir aðilar hafa gengið frá samningamálunum, en hann mun formlega ganga í raðir félagsins 1. júlí.

Sterk viðbót við hópinn hjá Madrídingum, sem eru þegar búnir að ná samkomulagi við Denzel Dumfries og Ibrahima Konate. Nico Paz gæti mögulega komið fyrir tombóluverð og þá vill Mourinho styrkja varnarlínuna enn frekar.


Slapp
banner