Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
   fim 11. júní 2026 14:53
Elvar Geir Magnússon
Forest hafnaði 120 milljóna punda tilboði City í Anderson
Mynd: EPA
Nottingham Forest hefur hafnað 120 milljóna punda tilboði Manchester City í miðjumanninn Elliot Anderson.

City hefur lagt aukna áherslu á að landa þessum 23 ára enska landsliðsmanni.

Ef City nær að kaupa Anderson þá mun félagið slá metið yfir dýrasta enska leikmanninn en núverandi met er frá 2023 þegar Arsenal borgaði 105 milljónir punda fyrir Declan Rice.

Manchester United hefur einnig áhuga á Anderson en hann vill frekar fara til City. United hefur því dregið sig úr kapphlaupinu því félagið vill ekki taka þátt í verðstríði.

Anderson byrjaði í 3-0 sigri Englands gegn Kosta Ríka á miðvikudag en hann er ein skærasta stjarna Forest.rget.
Slapp
banner
banner