Arsenal á höttunum eftir Williams - Liverpool og Manchester-liðin hafa líka áhuga - Juventus í viðræðum við Aston Villa
banner
   fim 11. júní 2026 11:50
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Myndaveisla: Gestirnir unnu Eyjafjarðarslaginn
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Magni tók í gær á móti grönnum sínum frá Dalvík í 2. deild karla. Leikurinn var fyrsti leikur ársins á Grenivíkurvelli en fram að leiknum í gær hafði Magni spilað sinn eina heimaleik í mótinu til þessa í Boganum á Akureyri.

Gestirnir úr Dalvík/Reyni komu inn í leikinn eftir sigurleik á móti Þrótti Vogum um liðna helgi og náði að tengja saman tvo sigra því Áki Sölvason og Elvar Máni Guðmundsson, leikmenn gestanna, sáu um markaskorunina í leiknum.

Magni 0 - 2 Dalvík/Reynir
0-1 Áki Sölvason ('34 )
0-2 Elvar Máni Guðmundsson ('70 )

Magni er á botni deildarinnar með fjögur stig eftir sjö umferðir en Dalvík/Reynir er í sjötta sæti með tíu stig.

Sævar Geir Sigurjónsson var á vellinum í gær og tók meðfylgjandi myndir.
2. deild karla
Lið L U J T Mörk mun Stig
1.    Haukar 7 5 1 1 21 - 8 +13 16
2.    Kári 7 3 3 1 21 - 12 +9 12
3.    Fjölnir 7 4 0 3 20 - 15 +5 12
4.    Selfoss 7 3 3 1 15 - 13 +2 12
5.    Kormákur/Hvöt 7 3 2 2 17 - 8 +9 11
6.    Dalvík/Reynir 7 3 1 3 8 - 12 -4 10
7.    KFA 7 3 0 4 19 - 15 +4 9
8.    KFG 7 3 0 4 11 - 20 -9 9
9.    Víkingur Ó. 7 2 2 3 12 - 18 -6 8
10.    Hvíti riddarinn 7 1 4 2 7 - 8 -1 7
11.    Þróttur V. 7 2 1 4 7 - 10 -3 7
12.    Magni 7 1 1 5 6 - 25 -19 4
Slapp
banner
banner