Fotbolti.net
11.07.03 - 00:00
Hafliði Breiðfjörð

Les Ferdinand til Leicester City. (STAÐFEST)

Leicester City hafa gengið frá samningum við Les Ferdinand framherja West Ham. Ferdinand er 36 ára gamall fyrrum leikmaður Tottenham og enska landsliðsins. Hann var í nokkra mánuði hjá West Ham á síðasta tímabili eftir að hafa lítið fengið að spreyta sig hjá Tottenham.
Micky Adams stjóri Leicester sagði við vefsíðu félagsins í morgun að reynsla Ferdinand ætti eftir að reynast félaginu vel. ,,Hann sýndi það á síðustu leiktíð er hann gekk í raðir West Ham að það er mikið lífi í honum enn og ég er viss um að það er mikill fengur í honum. Annar stór plús er að hann er góð fyrirmynd hinna framherjanna og sérstalega þeirra ungu."

Ferdinand er annar leikmaðurinn sem kemur til Leicester í dag en fyrr í morgun sömdu þeir við franska miðvallarleikmanninn Lilian Nalis frá Chievo. Þeir voru því sjötti og sjöundi leikmaðurinn sem kemur til Leicester í sumar, hinir voru: Steve Howey (Man City), Paul Brooker (Brighton), Riccardo Scimeca (Nottingham Forest) and Danny Coyne (Grimsby Town.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.