11.07.12 - 11:37
Magnús Már Einarsson
Maxi Lopez til Sampdoria (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Argentínski framherjinn Maxi Lopez hefur gengið til liðs við Samdporia á láni frá Catania.
Þessi 28 ára gamli leikmaður var í láni hjá AC Milan síðari hlutann á síðasta tímabili.
Þar skoraði Lopez tvö mörk í átta deildarleikjum en AC Milan endaði í öðru sæti í Serie A.
Lopez hefur verið orðaður við nokkur félög í sumar en nú er ljóst að hann mun leika með Sampdoria á komandi tímabili.

Lopez er frá Argentínu en hann var einnig á mála hjá Barcelona á sínum tíma.
Heimild: Sky