Fotbolti.net
11.07.12 - 16:33
Elvar Geir Magnússon
Ítalska deildin

El Hamdaoui til Fiorentina (Staðfest)

El Hamdaoui til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska A-deildarliðið Fiorentina hefur staðfest kaup á sóknarmanninum Mounir El Hamdaoui frá Ajax.

Það leit út fyrir að leikmaðurinn væri á leið til Fiorentina í janúar en ekki var hægt að klára alla pappírsvinnuna áður en félagaskiptaglugginn lokaði.
El Hamdaoui er landsliðsmaður frá Marokkó sem fæddist í Rotterdam.

Þessi 27 ára leikmaður var á sínum tíma í herbúðum Tottenham og Derby á Englandi. Hann skoraði 19 mörk í 38 leikjum fyrir Ajax.

Fiorentina hafnaði í 13. sæti ítölsku A-deildarinnar á síðasta tímabili.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.