Fotbolti.net
11.07.12 - 14:10
Magnús Már Einarsson

Paddy Kenny til Leeds (Staðfest)

Paddy Kenny til Leeds (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds United hefur keypt markvörðinn Paddy Kenny frá QPR en talið er að kaupverðið sé í kringum 400 þúsund pund.

Neil Warnock stjóri Leeds er mesti aðdáandi Kenny í heiminum en þeir félagar munu nú starfa saman í fjórða skipti á ferlinum.
Kenny lék áður undir stjórn Warnock hjá Bury, Sheffield United og síðast QPR.

Kenny, sem er 34 ára, fékk að fara frá QPR eftir að félagið keypti Robert Green frá West Ham.

Hann er fjórði leikmaðurinn sem Leeds fær í sumar á eftir Jason Pearce, Adam Drury og Paul Green.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.