Fotbolti.net
11.07.12 - 20:30
Daníel Freyr Jónsson

WBA fær leikmann Genk á láni (Staðfest)

WBA fær leikmann Genk á láni (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

WBA hefur fengið til sín belgíska landsliðsmanninn Yassine El Ghanassy á láni frá Genk.
El Ghanassy, sem verður 22 ára á morgun, mun vera hjá WBA allt næsta tímabil og hefur enska liðið rétt á að kaupa hann á meðan lánssamningurinn gildir.



Steve Clarke, nýráðinn stjóri WBA, er hæstánægður með að klófesta leikmanninn.



,,Ég er í skýjunum með að bjóða Yassine velkominn til félagsins,\" sagði Clarke.



,,Hann er spennandi, ungur leikmaður sem mun vonandi bæta einhverju nýju við liðið. Þetta er stórt skref fyrir Yassine og við munum þurfa að vera þolinmóðir meðan að hann aðlagast nýju lífi og styrkleika ensku úrvalsdeildarinnar.\"



,,En við trúum því að hann sé með þau gæði sem þarf til að hafa áhrif hérna.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.