Fotbolti.net
11.07.12 - 19:04
Magnús Már Einarsson

Brons í Selfoss (Staðfest)

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Logi Ólafsson þjálfari Selfyssinga.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Selfyssingar hafa samið við hollenska miðvörðinn Bernard Petrus Brons og mun hann leika með liði Selfoss í Pepsi-deildinni út leiktíðina en þetta kemur fram á sunnlenska.is í kvöld.
Bernard kom til landsins í gær til reynslu og samkvæmt heimildum sunnlenska.is sömdu Selfyssingar við hann strax að lokinni fyrstu æfingu. Brons kemur til Selfoss frá norska liðinu Fana IL.

Hann er 26 ára gamall, stór og sterkur miðvörður sem þykir góður í að stjórna og skipuleggja varnarleik að því er fram kemur á vef Sunnlenska.

Forráðamenn Selfoss leituðu álits fjölmargra aðila og fær leikmaðurinn allstaðar góð meðmæli. Þá þekkir Endre Ove Brenne, varafyrirliði Selfoss, til leikmannsins.

Honum er ætlað að fylla skarð Stefáns Ragnars Guðlaugssonar, fyrirliða Selfoss, sem meiddist gegn Stjörnunni og verður frá næstu vikurnar og Agnars Braga Magnússonar sem heldur utan til náms í Bandaríkjunum um miðjan ágúst.

Félagaskiptaglugginn á Íslandi opnar á sunnudag og því ætti Brons að geta leikið sinn fyrsta leik þegar Selfyssingar heimsækja skagamenn á mánudag.

Heimild: Sunnlensk.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.